51.700.000 kr. - 59,9 ferm. - 2 herbergi Fjölbýlishús - 110 Reykjavík








































2ja herbergja íbúð á jarðhæð við Hraunbæ 196, 110 Reykjavík. Eignin er skráð 59,9 fm. og skiptist þannig að íbúðin er 55,2 fm. og geymslan í sameign er 4,7 fm. Merkt útistæði fylgir íbúðinni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR
Lýsing eignar: Komið er inn í hol með plastparketi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og sturtuklefi. Svefnherbergi er með harðparketi og lausum skáp. Eldhús er með L-laga innréttingu, neðri skápum sem og heilum skáp, stór gluggi á eldhúsi, borðkrókur og plastparket á gólfi. Stofan er við hlið eldhúss, plastplarket á gólfi og útgengt á vestursvalir sem snúa yfir garðinn.
Sameign: Sérgeymsla í sameign, sameiginlegt þvottahús sem og hjóla- og vagnageymsla.
Staðsetning og nærumhverfi:
Aðal einkenni hverfisins er mikil nánd við náttúruna. Ein helsta útivistarperla borgarinnar Elliðaárdalurinn er í göngufæri sem og Rauðavatn en einnig er stutt í Elliðarárvatn. Ein vinsælasta sundlaug landsins, Árbæjarlaug, er í hjarta hverfisins. Ennfremur er stutt í mikla þjónustu s.s matvöruverslarnir, leiksskóla og skóla.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402
Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Fjölbýlishús |
| Verð | 51.700.000 kr. |
| Fasteignamat | 47.750.000 kr. |
| Brunabótamat | 33.100.000 kr. |
| Stærð | 59,9 fermetrar |
| Herbergi | 2 |
| Svefnherbergi | 1 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1967 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 29.09.2026 |