Kársnesbraut 103

139.700.000 kr. - 186,0 ferm. - 6 herbergi Einbýlishús - 200 Kópavogur

Lýsing eignar

Einbýlishús á þremur pöllum með stórum garði við Kársnesbraut 103, 200 Kópavogur. 2 stofur, 2 baðherbergi og 4 svefnherbergi.  Húsið hefur verið töluvert endurnýjað sem og endurskipulagt. Húsið er skráð 154 fm og bílskúrinn 32 fm. Kársnesbraut er vel staðsett og stutt í Kárnsesskóla, sundlaug Kópavogs (og Katla Fitness), Fífan er í göngu/hjólafæri. Góðar strætósamgöngur í Hamraborg þar sem einnig er öll helsta þjónusta sem og á Nýbýlavegi. Stutt niður að sjó og þar liggur göngustígur í báðar áttir um allt höfuðborgarsvæðið.

Lýsing eignar:  

Miðrými: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi með gólfhita og þaðan er gengið inn í hol með flísum og gólfhita. Frá holi er gengið inn í önnur rými. Eldhúsið er mjög rúmgott, viðarinnrétting á 2 veggjum með efri og neðri skápum, í framhaldi af eldhúsi er borðstofa með glugga, flísum á gólfi og gólfhiti. Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og innangengt í sólskála með flísum á gólfi með gólfhita. Frá sólskála er útgengt á suðurpall með heitum potti sem og rúmgóðan afgirtan suðurgarð með geymsluskúr.

Efri pallur: Rúmgott sjónvarpshol með parketi (var áður 2 svefnherbergi). Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, walkin sturta, upphengt salerni og innrétting.

Neðri pallur: 3 svefnherbergi, eitt með parketi og 2 með máluðu gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og upphengt salerni. Þvottahús með flísum á gólfi, vask og útgengt á bílstæði. 

Bílskúrinn er 32 fm með gönguhurð og bílskúrshurð. Í dag er hann innréttaður sem vinnuaðstaða. Við hlið hans er opið bílskýli. Einangruð heiti geymsla er við hlið bílskúrs. Einnig fylgja 2 kaldar geymslur.

Viðhald: 
2006: Nýtt dren og nýtt skolp út í götu. Skipt var um þak nema 2 sperrur. Skipt um vatnslagnir og settur gólfhiti.
2007: Þakkantur yfirfarinn
2021: Húsið málað að utan. Skipt um allt gler og nýjir listar í alla glugga nema í stóru stofu.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

186,0 m2 4 svefnherbergi 2 baðherbergi Bílskúr: já

Eiginleikar eignar

Tegund Einbýlishús
Verð 139.700.000 kr.
Fasteignamat 136.850.000 kr.
Brunabótamat 94.600.000 kr.
Stærð 186,0 fermetrar
Herbergi 6
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 2
Byggingarár 1966
Lyfta nei
Bílskúr já
Bílskýli nei
Garður já
Skráð 30.09.2026

Deila eign



Pin it