Laugarnesvegur 98 - 64.700.000 kr. - 77,0 ferm. - 2 svefnherbergi

Fjölbýlishús - 105 Reykjavík

Lýsing eignar

Spennandi 3ja herbergja íbúð við Laugarnesveg 98, 105 Reykjavík. Íbúðin er á jarðhæð með sérinngangi. Íbúðin er á 2 hæðum og heildarstærð eignar samkvæmt skráningu HSM er 77 fm. Íbúðin er vel staðsett í grónu og vinalegu hverfi miðsvæðis í borginni. Laugardalurinn með hinum einstaka Grasagarði, frábærum gönguleiðum og svo er stutt í fjöruna á Laugarnestanga. Laugarnesskóli og Laugalækjarskóli eru í göngufæri.

Lýsing eignar: Gengið er inn um sérinngang og komið inn í forstofu með fataslá. Stofan er með stórum gluggum og opið að hluta inn í eldhús með lausum neðri skápum og föstum efri skápum, góður borðkrókur. Við hlið eldhúss er búið að stúka af gluggalaust vinnuherbergi sem mætti auðveldlega nýta sem svefnherbergi. Gengið niður hringstiga á neðri hæð. Rúmgott svefnherbergi með harðparketi. Baðherbergi með epoxy á gólfi og flísum á 2 veggjum, sturtuklefi, handklæðaofn og gluggar. Fataherbergi er innaf hjónaherbergi með glugga. Á efri hæðinni er steingólf (Terrazzo).

Helstu kostir að mati seljanda er hvað er hægt að sækja margt í göngufæri, 2  litlir þjónustu-  og verslunarkjarnar við Laugalæk og Kirkjusand  með skemmtilegum verslunum, kaffihúsum veitingarstöðum, list og menningu. Fjölbreytt aðstaða til íþrótta og útivista fyrir unga sem aldna. Laugardalslaug, íþróttamannvirki Laugardals. Frábærar gönguleiðir um Laugardalinn og Laugarnestangann. Grasagarðurinn og Fjölskyldu og húsdýragarðurinn.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

77,0 m2 2 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 64.700.000 kr.
Fasteignamat 64.100.000 kr.
Brunabótamat 35.200.000 kr.
Stærð 77,0 fermetrar
Herbergi 3
Svefnherbergi 2
Baðherbergi 1
Byggingarár 1957
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 04.02.2026

Deila eign



Pin it