Litlavör 23

109.700.000 kr. - 130,0 ferm. - 5 herbergi Einbýlishús - 200 Kópavogur

Lýsing eignar

Einstök eign við Litluvör 23, 200 Kópavogur. Um er að ræða einbýlishús á frábærum stað á Kársnesinu á 2 hæðum. Stór og gróinn garður og sjávarútsýni. Húsið er skráð 130 fm og þar af er viðbygging 20 fm sem í dag er nýtt sem saumastofa. Eignin er á 2 hæðum og er efri hæðin töluvert undir súð og því nýtanlegir fermetrar mun meiri. Húsið er byggt af Jóni úr Vör og er hluti af sögu Kópavogs. Þetta er hús með sál. 

Húsið hefur verið töluvert endurnýjað. 2017 var bæði baðherbergi og eldhús endurnýjað sem og skolp og vatnslagnir og dregið í rafmagn á neðri hæðinni. 2019 var þakið lagaðð sunnan megin og ný svalahurð sett í . Nýr þakpappi á svalir og stoðir styrkar. 2025 var þakið málað.

Lýsing eignar:  

Neðri hæð: Gengið er inn á neðri hæðina. Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Þvottahús með glugga er innaf forstofu, flísar á gólfi. Rúmgott hjónaherbergi með harðparketi og opnum fataskáp. Eldhús er með U-laga innréttingu, efri og neðri skápum og glugga með útsýni. Borðstofa við hlið eldhúss með hydrokrok frá Þ. Þorgríms. Stofan er rúmgóð með stórum hornglugga og útsýni. Baðherbergi er með flísum á gólfi og 2 veggjum, rúmgóð sturta með fjallasýn, upphengt salerni og baðkar. 

Efri hæð: Gengið upp timburstiga og komið inn í hol með parketi á gólfi og fallegum glugga með sjávarútsýni. 3 svefnherbergi, eitt með parketi og 2 með gólffjölum. Frá holi er gengið út á svalir.

Garðurinn er stór og gróinn með palli þar sem frábært útsýni næst yfir sjóinn.

Geymslan er viðbygging, flísar á gólfi, góðir gluggar og er hún nýtt sem saumastofa í dag.

Þetta er frábært fjölskylduhús sem bíður upp á mikla mögulega. Húsið er vel staðsett, miðsvæðis á Kársnesinu og stutt í verslun og þjónustu. Fjölskylduvænt hverfi og nágrenni við sjóinn. Garðurinn er sælureitur á sumrin og útsýnið er frábær viðbót við húsið. Það eru 4 leikskólar og grunnskóli í hverfinu. Kópavogslaugin og Rútstúnið er þarna rétt hjá ásamt Sky Lagoon, Brikk, Mossley og Brasserí Kársnes. Hamraborgin með allri sinni þjónustu eru í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

130,0 m2 4 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Einbýlishús
Verð 109.700.000 kr.
Fasteignamat 110.150.000 kr.
Brunabótamat 65.410.000 kr.
Stærð 130,0 fermetrar
Herbergi 5
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 1
Byggingarár 1938
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 04.06.2026

Deila eign



Pin it