Tví/þrí/fjórbýli - 105 Reykjavík






















































Húsaskjól kynnir snotra 3ja herbergja efri hæð ( rishæð ) í þríbýli við Miðtún 10 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 54,6 fm hjá HMS þar af er geymsla í kjallara 6 fm. Vekjum athygli á að skráðir fm taka mið af þvi að hæðin er undir súð. Birt stærð hæðarinnar fyrir neðan er 62,7 fm, auk geymslu.
Sölusýning 30.10.25 kl 12:30, smellið hér til að bóka tíma.
Lýsing:
Frá sameiginlegri forstofu er gengið upp eina hæð á stigapall ( með fatahengi ) þaðan er komið inn á gang, lítið snoturt eldhús með innréttingu á einum vegg, lítill borðkrókur. Gegnt eldhúsi er stofa, með útgengi á svalir mót suðri. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með stórum línskáp, upphengdu wc, sturtuklefa og handlaug. Svefnherbergið er rúmgott með fataherbergi. Gegnt svefnherbergi er rúmgott herbergi, notað sem menningarherbergi, en gæti verið barnaherbergi. Gólfefni utan baðherbergis er harðparket.
Tilvalin eign fyrir þá sem eru að kaupa sína fyrstu eign.
Fasteignamat 2026 verður 53.350.000.
Miðtún 10 er við rólega einstefnu götu, í göngufæri við miðborgina og Laugardalinn. Með góða góða tengingu við leiðakerfi Strætó, þá eru verslanir og þjónusta í göngufæri.
Upplýsingar um eignina veitir Guðbrandur Kristinn Jónasson lgfs gudbrandur@husaskjol.is gsm 8963328.
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
| Tegund | Tví/þrí/fjórbýli |
| Verð | 56.900.000 kr |
| Fasteignamat | 48.850.000 kr |
| Brunabótamat | 32.900.000 kr |
| Stærð | 54,6 fermetrar |
| Herbergi | 3 |
| Svefnherbergi | 2 |
| Baðherbergi | 1 |
| Byggingarár | 1944 |
| Lyfta | nei |
| Bílskúr | nei |
| Bílskýli | nei |
| Garður | já |
| Skráð | 28.10.2025 |