Víðimelur 45 - 64.700.000 kr. - 68,1 ferm. - 1 svefnherbergi

Fjölbýlishús - 107 Reykjavík

Lýsing eignar

Björt og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með sameiginlegum inngangi við Víðimel 45, 107 Reykjavík. Íbúðin er skráð 68,1fm og þar af er geymslan 7,7 fm.  Íbúðin er rúmgóð og hlý, stofan er með góðum glugga og aukaskoti sem nýtist gífurlega vel sem vinnuherbergi og einnig mætti stúka af lítið barnaherbergi ef þar. Íbúðin er vel staðsett í Vesturbænum og stutt að ganga í þjónustu og afþreyingu. Mikið af hlaupa- og hjólaleiðum og Sundlaug Vesturbæjar og Kaffi Vest skammt hjá. 

Gluggar í íbúðinni sem og sameignargluggar á norðurhlið verða endurnýjaðir á kostnað seljanda.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR AF VÍÐIMEL 45

Lýsing eignar: Gengið er inn um sameiginlegan aðgang og komið inn í forstofu með fatahengi og parketi á gólfi. Stofan er L-laga með stórum glugga, parket á gólfi, í enda stofu er gott skot sem nýtist vel sem vinnuherbergi. Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum og parketi og þaðan er útgengt á suðvestursvalir sem snúa yfir sameiginlegan garð. Eldhús er L-laga með efri og neðri skápum, flísar á milli skápa, gluggi og parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni og glugga. Yfir megninu af íbúðinni er lágt geymsluloft með glugga.

Sameign: Sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél. Garðurinn er sameiginlegur.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Á hvað eru sambærilegar íbúðir að seljast? Skoðaðu Verðsaga Húsaskjóls fyrir þinglýsta kaupsamninga frá 2006 
Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka sölumat á þinni eign. 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

68,1 m2 1 svefnherbergi 1 baðherbergi Bílskúr: nei

Eiginleikar eignar

Tegund Fjölbýlishús
Verð 64.700.000 kr.
Fasteignamat 66.550.000 kr.
Brunabótamat 36.850.000 kr.
Stærð 68,1 fermetrar
Herbergi 2
Svefnherbergi 1
Baðherbergi 1
Byggingarár 1938
Lyfta nei
Bílskúr nei
Bílskýli nei
Garður
Skráð 12.03.2026

Deila eign



Pin it