Heimalind 14 - 152.500.000 kr - 200,5 ferm.

- 201 Kópavogur

Lýsing eignar

HÚSASKJÓL KYNNIR:

Rúmgott einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr og stórum garði við Heimalind 14, 201 Kópavogur. Húsið er vel staðsett í þessu vinsæla og fjölskylduvæna hverfi. 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, stofa, gott þvottahús og innbyggður bílskúr. Stór innkeyrsla með hita að hluta fyrirfram hús, ekki fyrirframan bílskúr, einnig er hiti í stéttinni fyrir framan hús og einnig mjög stór garður og bakvið hann er svæði sem tilheyrir Kópavogi. Húsið er skráð 200,5 fm og þar af er bílskúrinn 29,7 fm.  Heimalind er virkilega vel staðsett gata í Lindahverfi og var valin gata ársins 2019 af Kópavogsbæ

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SÖLUSÝNINGU OG  SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR HEIMALIND 14. Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Linkur á video af Heimalind 14
Teikningar af Heimalind 14

Lýsing eignar:

Komið er inn í forstofu með flisum á gólfi og fataskáp, gólfhiti í forstofu sem og eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum. Eldhús er með U-laga innréttingu, efri og neðri skápum, flísar á gólfi sem og á milli skápa, stór borðstofa í eldhúsi. Eldhúsið er bjart með góðum gluggum og einnig er útgengt frá eldhúsi, borðplatan er úr Corean efni. Stofan er rúmgóð með flísum á gólfi, léttur veggur stúkar af stofu og svefnherbergisgang. 4 svefnherbergi, 3 þeirra eru mjög rúmgóð, öll með parketi á gólfi og 2 með föstum skápum. 2 baðherbergi eru í húsinu. Baðherbergi 1 er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar, innrétting, gluggi og upphengt salerni. Baðherbergi 2 er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu. Þvottahús er með flísum á gólfi, vask, snúrum og skápum, útgengt er frá þvottahúsi. Innaf þvottahúsi er bílskúr með glugga, heitu og köldu vatni og rafmagni. Garðurinn er mjög stór og í framhaldi af bakgarðinum tekur við gróið svæði frá Kópavogsbæ og svo göngu/hjólastígur sem liggur í allar áttir.

Staðsetning og nærumhverfi:
Heimalind 14 er gífurlega vel staðsett í vinsælli botnlangagötu. Stutt er í Lindaskóla og leikskólana Dal og Núp. Einnig er örstutt í íþróttamiðstöðina Versali þar sem er sundlaug, líkamsræktarstöð og íþróttafélagið Gerpla. Einnig heilsugæslustöð og matvöruverslanir. Helstu útivistarsvæði Kópavogs eru skammt undan, s.s. Guðmundarlundur, Kópavogsdalurinn og Heiðmörk. Verslunarkjarnarnir Lindir og Smáratorg eru einnig í göngufæri. Lindahverfi er mjög fjölskylduvænt og í mörgum botnlöngum eru litlir leikvellir.

Samantekt:
Mjög vel staðsett einbýlishús með 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, innbyggðum bílskúr og mjög stórum garði þar sem stutt er í alla þjónustu.

Ef þú átt eftir að selja þá er mikilvægt er að vera með staðfest verðmat á þinni eign til að geta sent inn raunhæf tilboð og verið samkeppnishæfur við aðra kaupendur. Smelltu hér til að bóka frítt sölumat á þinni eign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir löggiltur fasteignasali í email: asdis@husaskjol.is eða í síma frá 09:00-17:00 á virkum dögum: 863-0402

Pantaðu verðmat
Kynntu þér nýlegar sölur í þínu hverfi
Fáðu ábendingu á nýjar eignir úr kaupóskakerfinu

Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Instagram
Fylgdu Húsaskjóli á TikTok
 
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

200,5 m2 4 svefnherbergi 2 baðherbergi Bílskúr: já

Eigindi eignar

Tegund Ekki skráð
Verð 152.500.000 kr
Áhvílandi Ekki skráð
Fasteignamat 123.000.000 kr
Brunabótamat 99.350.000 kr
Stærð 200,5 fermetrar
Herbergi Ekki skráð
Svefnherbergi 4
Baðherbergi 2
Byggingarár 2002
Lyfta nei
Bílskúr
Bílskýli nei
Garður nei
Greiðslubyrði* Ekki skráð
Útborgun** Ekki skráð
Skráð Ekki skráð

* M.v. 80% verðtryggt lán til 35 ára (ath aðeins til viðmiðunar)
** Lágmarks útborgun m.v. að 80% lán sé tekið (ath aðeins til viðmiðunar)