fimmtudagur 10.09.2026

Eru leyndarmál í húsfundargerðum?

Við höfum séð það æ oftar að sá sem sér um húsfélagið vill ekki senda aðalfundargerðina áfram þar sem hún inniheldur allskonar trúnaðarmál og eitthvað sem þeim finnst ekki koma væntanlegum kaupendum við. Það er gífurlega mikilvægt að vera upplýstur um að fundargerðir eru fylgiskjöl við kauptilboð og kaupsamninga og því á eingöngu að setja inn atriði sem skipta máli, t.d. varðandi væntanlegar framkvæmdir.

Ef einhver nágranni er mjög erfiður þá þarf að taka það fram sérstaklega ef það eru til bókanir að ég tali ekki um lögregluskýrslur um vandamál í húsinu en ef Gunnu í 101 finnst Sigga í 301 leiðinleg og krakkarnir hennar óþolandi frekjur þá getur það bara verið hennar persónulega skoðun.

Það er því lykilatriði að skilja á milli persónulegs álits og atriða sem skipta máli við söluna. Oft er fólk að ræða um allskonar hluti. Það að segja að það væri gaman að skoða á næstu árum að fá garðhönnuð til að poppa upp sameiginlega svæðið er alls ekki það sama og samþykkt hafi verið á fundi að ráða garðhönnuð á næsta ári til að endurhanna garðinn.

Mín ráðlegging er að hafa skýr mörk á milli þess hvað hefur sannarlega verið ákveðið og samþykkt og hvað er meira svona óformlegt chat. Það á alls ekkert allt við í aðalfundargerð og mjög mikilvægt er að muna að aðalfundargerð er alltaf fylgiskjal vegna sölu á íbúðum og mun því fylgja á næstu árum sem fylgiskjal líka þegar næsti selur.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

863 0402



Aðrar færslur