þriðjudagur 21.04.2026

Eru skilmálar verktakalánanna eðlilegir?

Ég er búin að vera að kynna mér sameignarsamningana sem eru vegna 20% hlut verktaka í nýbyggingum sem þeir eru að selja. Þegar ég var búin að lesa grein 8 þá var það fyrsta sem ég hugsaði: Hvaða djöfulsins djöflasýru er ég að lesa. Svo mundi ég að ég er miðaldra kona og þær eru stundum pirraðar þannig að ég skellti mér í kalda sturtu, gerði nokkrar öndunaræfingar og íhugaði með tebolla þar sem eina eðlilega skýringin á lið 8 er að ég fékk rangt template því auðvitað sendir fólk ekki frá sér samning sem er í besta lagi siðblindur og í versta falli ólöglegur.

Hvað er eiginlega í lið 8:

8.2 REIR20 og viðskiptavinur bera sameiginlega ábyrgð á að krefjast úrbóta á hvers kyns göllum og annmörkum á húsnæðinu, óháð því hvort aðilar vissu af þeim fyrir samningsdag eða ekki. Viðskiptavinur skal koma fram fyrir hönd aðila í samskiptum við seljanda húsnæðisins en REIR20 skal veita allt liðsinni sem nauðsynlegt eða á kjósanlegt þykir. Á ég sem kaupandi að hjóla í meðeiganda minn til að bæta úr galla sem hann ber ábyrgð á?

8.3 Viðskiptavinur ber ábyrgð á viðgerðum vegna tjóns sem hefur orðið af völdum innbrots, skemmdarverka, veðurs, slysa eða tæknigalla. Alltaf gaman að læra nýtt orð. Veit einhver hvað tæknigalli þýðir? En aftur. Verktakinn ber alltaf ábyrgð á því að bæta úr öllum göllum.

8.4 Viðskiptavinur skal tryggja og greiða fyrir kostnað sem hlýst af því að húsnæðið uppfylli þær kröfur sem leiða af opinberum reglum...Erum við hætt að byggja eignir sem uppfylla opinberar reglur? Nokkuð viss um að það þurfi ennþá að fara eftir opinberum reglum, s.s.byggingarreglugerðum og það sé verktakans að tryggja að eignin sé í samræmi við þær og hægt sé að fá lokaúttekt en ekki kaupandans.

Í lögum um fasteignakaup frá 2002 kemur skýrt fram að ekki sé heimilt að víkja frá lögunum með samningi í neytendakaupum ef það yrði óhagstæðara fyrir kaupanda. Með neytendakaupum er í lögum þessum átt við kaup á fasteign af seljanda, þegar salan er liður í atvinnustarfsemi hans, og eignin er aðallega ætluð til persónulegra afnota fyrir kaupanda.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur