þriðjudagur 26.05.2026

Eru stýrivextir tímaskekkja?

Þegar ég var rúmlega tvítug þá var ég au-pair í New York. Ég fékk geggjað eldrauðan Subaru Legacy með topplúgu til umráða og þegar ég var nýkomin út þá fékk ég það verkefni að keyra unglingana á skíði til Massachusetts. Það var beinn og breiður vegur og ég naut þess að keyra þennan frábæra bíl en passaði mig auðvitað að vera á réttum hraða og hélt mig á 90.

Eftir smá tíma þá stoppaði lögreglan mig þar sem þeir vildu meina að ég væri á allt of miklum hraða. Það hafði bara engum dottið í hug að nefna þetta smáatriði að það væru mílur í Bandaríkjunum og hámarkshraðinn væri 55 mílur en ekki 90 sem eru sko rúmlega 140 km. hraði. Ég rétti þeim ökuskírteinið mitt og þeir horfðu á þetta og spurðu hvort að ég hefði fengið það í seríospakka, stóra bleika skírteinið mitt sem var á íslensku og smá frönsku.

Þar sem ég var ung, sæt, hvít og frá landi sem enginn þekkti þá fannst þeim þetta pínu fyndið og leyfðu mér að halda áfram með því loforði að keyra á löglegum hraða.

Þegar ég heyrði rök seðlabankastjóra fyrir síðustu stýrivaxtahækkun í maí 2026 þá velti ég því fyrir mér hvort að það sé ekki kominn tími til að hætta að nota sama seríospakkann og við höfum notað síðustu áratugi. Þessi frasi það þarf að beisla verðbólguna, við þurfum að passa verðbólgumarkmiðið okkar sem er 2,5% og ef við náum ekki að beisla þetta þá verðum við bara að halda áfram að hækka stýrivextina. Ólíkt löggunni í bandaríkjunum þá fáum við engar leiðbeiningar.

Ok Ásgeir ég er öll af vilja gerð til að lækka verðbólguna og ná tökum á þessu. Gefðu mér bara plan og ég skal fara eftir því í einu og öllu. Að vera með hótanir að ef við náum ekki að beisla hana þá hækkir þú bara stýrivextina áfram er ömurlegt uppeldi og löngu hætt að vera viðurkennt að það sé hollt fyrir börn að vera rassskellt.

Þannig að hvernig væri að koma niður úr þessum fílabeinsturni og eiga bara einlægt samtal við alla og búa til plan sem við getum unnið að í sameiningu. Þannig að við getum öll lagt okkar af mörkum til að ná árangri ekki að okkur sé haldið í gíslingu með stýrivaxtahækkunum og hótunum um frekari hækkanir ef við breytum ekki einhverju óskilgreindu dæmi.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur