Fasteignakeðjur geta orðið mjög stórar og það er ansi margt sem getur klikkað í þeim. Á rólegum markaði eins og núna þá getur það tekið marga mánuði að klára eina keðju og það eru gífurlega margir aðilar sem koma að þeim. Það eru kaupendur og seljendur, það er fasteignasalinn sem sér um hverja sölu og svo eru það lánastofnanir sem þurfa að vinna saman, bæði þær sem eiga áhvílandi lán sem og þær sem eru með nýju lánin.
Í dag er ekkert ólíklegt að það gæti tekið 4-6 mánuði að vinda ofan af eignakeðju með 4 eignir. Það þarf líka að hafa í huga að þegar þú kaupir eign á lækkandi markaði þá gætir þú verið að borga yfirverð fyrir eignina loksins þegar þú ferð í kaupsamning.
Seljendur eru því líklegri til að taka frekar lægra tilboði ef það er ekki fyrirvari um sölu. Hvað getur annað klikkað í eignakeðju?
Helstu fyrirvarar eru fyrirvarar um sölu, greiðslumat, veðflutning og ástandsskoðun. Það eru oft margar fjölskyldur sem eru fastar í einni keðju og fólk er jafnvel búið að sækja um flutning í leikskóla sem þarf að bakka með þar sem keðjan rofnaði og allar sölurnar gengu til baka.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402