fimmtudagur 07.05.2026

Geta kaupendur með verktakalán tapað öllu sínu eigið fé?

Núna í apríl 2026 erum við á lækkandi markaði. Verðin eru að lækka og seljendur og þ.m.t verktakar þurfa oft að lækka verðið til að geta selt sínar eignir.

Í Vísi þann 25.mars 2026 talaði seðlabankastjóri um að lánveitendur þurfi að vera vakandi fyrir “aukinni áhættu” í byggingageiranum þar sem skuldir hafi farið þar vaxandi. Þá er bent á að húsnæðisverð sé enn hátt á flesta mælikvarða þrátt fyrir að það sé farið að lækka að raunvirði. Það tekur lengri tíma að selja eignir, sérstaklega nýbyggingar. Vaxandi hluti útlána viðskiptabanka til byggingarfyrirtækja eru nú flokkaðir sem lán með aukna áhættu.

Þann 10.apríl 2026 skrifar Innherji á Vísi að bankar muni fljótlega fara að setja verktökum stólinn fyrir dyrnar vegna mögulegs lausafjársvanda. Hvað þýðir þetta fyrir kaupendur á nýbyggingum með verktakalánum? Þeir leggja fram 10%, stundum eru þeir m.a.s að festa sér íbúð sem er ekki tilbúin til afhendingar þannig að þegar hann flytur inn þá er jafnvel verið að selja íbúðir í sama stigagangi á umtalsvert lægra verði.

Ef aðili kaupir íbúð á 70.000.000 og fær hana afhenta við kaupsamning og hann flytur inn og 6 mánuðum seinna þá er búið að lækka aðrar íbúðir í stigaganginum um 5%-10% þá er hann kominn í þá stöðu að bæði er allt hans eigið fé í raun farið út um gluggann en hann er líka kominn með íbúð sem hann getur ekki selt nema með miklu tapi því hver myndi vilja kaupa notaða íbúð á hærra verði en nýja.

Ég vil því ráðleggja öllum sem eru að hugsa um að kaupa sér nýbyggingu með verktakalánum að spyrja hreinlega hver eiginfjárstaða verktakans er. Hversu margar eignir hann á óseldar og hversu langan tíma megi áætla að það taki að selja hans lager. Er hann með mikið af verkefnum á teikniborðinu og er það fullfjármagnað?

https://www.visir.is/g/20262860590d

https://www.visir.is/g/20262867264d/vara-vid-lausafjarvanda-verk-taka-thegar-bankarnir-setja-theim-stolinn-fyrir-dyrnar

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur