fimmtudagur 19.03.2026

Bera launþegar ábyrgð á stýrivöxtum?

Í mars ákvað Seðlabankinn að hækka stýrivexti um 0,25%, 2 nefnarmanna vildu meira að segja hækka þá um 0,5%. Rökin fyrir stýrivaxtahækkun voru að verðbólga væri að aukast á ný þrátt fyrir minni umsvif í efnahagslífinu.

Hvers vegna ætli verðbólgan sé að aukast? Jú hið opinbera hækkaði gjöld og álögur. Launahækkanir á kjarasamningum á almennum markaði og svo rúsínan í pysluendanum. Stríðsátök við Persaflóa. Seðlabankinn hefur ennfremur gefið í skyn að þeir séu tilbúnir að hækka stýrivextina meira ef það næst ekki að beisla verðbólguna.

Eftir hrun fór stýrivextirnir hæst í 18% og yfirdráttarvextir voru 25%.

Hvað ætli hafi gerst í kjölfarið?

Jú fólk fór að halda að sér höndum og setti í forgang að greiða af húsnæðinu, leikskólagjöld og kaupa í matinn. Það minnkaði neyslu. Hvað gerist þegar fólk minnkar neyslu?

Jú, tekjur fyrirtækja dragast saman. Hvað gerist þegar tekjur fyrirtækja dragast saman?

Jú, þau þurfa að segja upp fólki. Hvað gerist þegar fyrirtækin segja upp fólki?

Jú fólki fjölgar á atvinnuleysisskrá með tilheyrandi kostnaði fyrir þjóðarbúið.

Þetta er eins og biluð plata. Launþegar geta hvorki stjórnað opinberum álögum né því að einhver þjóðarleiðtogi með mikilmennskubrjálæði ákveði einhliða að ráðast á annað land og setja aðföng heimsins í uppnám.

Mig langar því að skora á alla hagsmunaaðila að setjast niður og finna leið til að láta hlutina ganga upp án þess að refsa venjulegu fólki með hækkunum á húsnæðislánunum þeirra.

Ég held að flestir geti verið sammála um að hækkun á stýrivöxtum er eingöngu fyrir hagsmuni fjármagnseigenda og kannski er kominn tími til að hugsa um hagsmuni heildarinnar og sjá hvað er best fyrir þjóðarbúið.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur