Þann 20. janúar 2026 mættu Jón Finnbogason framkvæmdastjóri Stefnis og Vignir S. Halldórsson verktaki í viðtal í Bítið á Bylgunni til að ræða mína gagnrýni á verktakalánin. Í þessu viðtali segir Vignir S. Halldórsson þegar hann er spurður hvað fólk ætti að gera ef fólk getur ekki endurfjármagnað eftir 10 ár að fólk væri ekki bundið í 10 ár og það gæti bara selt íbúðina, borgað sjóðnum til baka og gert eitthvað annað.
Ég væri mjög til í að Stefnir myndi senda mér skilmálana hvað gerist eftir 10 ár. Mín gagnrýni snýst ekki að því að fólk vilji selja fyrr en eftir 10 ár. Hún snýst um það hvað gerist eftir 10 ár ef fólk getur ekki endurfjármagnað. Hvað gerist ef ég get ekki borgað upp verktakalánin eftir 10 ár? Við skulum þá selja þessa íbúð sem ég keypti fyrir 10 árum og sjá hvernig ég kem út.
Inn á www.fasteignabru.is er sýnidæmi og við tökum dæmi 2.
Ég keypti íbúð á 70.000.000 og eftir 10 ár kostar hún 100.000.000. Ég lagði út 10% eða 7.000.000. Sjóðurinn lagði fram 20% eða 14.000.000 og ég tók verðtryggt lán til 25 ára upp á 49.000.000 með 4.79% vöxtum. Eftir 10 ár get ég ekki greitt sjóðnum til baka þannig að ég ákveð að selja íbúðina. Hins vegar er markaðurinn ekki góður þannig að ég sel 100.000.000 á 95.000.000. Ég skulda 65.000.000 af húsnæðisláninu og þá á ég eftir 30.000.000. Ég skulda verktakanum 20.000.000 þannig að þá ég 10.000.000. Ég greiði 1.500.000 í sölulaun og þá á ég 8.500.000. Þannig að eftir 10 ár stend ég eftir með 8.500.000 sem dugar ekki einu sinni til að koma mér inn á markaðinn aftur þar sem íbúðin sem kostaði 70.000.000 kostar núna 100.000.000.
Það er lykilatriði að fá svar við þessari einföldu spurningu því það er himinn og haf á milli þess að fara inn á markaðinn 25 ára eða reyna að komast inn á hann aftur 35 ára jafnvel með 2 börn og maka í námi. Miðaldra fólk í forréttindastöðu skuldar ungu fólki skýr svör og við einfaldlega getum ekki bara krossað fingur og vonað að þetta reddist.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402