fimmtudagur 09.11.2023

Er betra að bíða með sölu framyfir áramót?

Á hverju einasta ári fæ ég þessa spurningu. Er fasteignamarkaðurinn ekki steindauður á aðventunni? Og á hverju einasta ári svara ég: ”síður en svo”. Ég veit að það er oft erfitt að trúa því en mín áratuga reynsla í bransanum segir einfaldlega annað. Það eru 5 ástæður fyrir því.

  1. Það eru færri kaupendur að skoða en þeir eru ákveðnir kaupendur, oft búnir að selja og þurfa að festa sér eign fyrir áramót
  2. Margir vilja hvíla eignina sína yfir hátíðarnir þannig að það eru færri eignir á skrá sem þýðir að þín hefur minni samkeppni
  3. Íslendingar sem búa erlendis nýta oft tímann í jólafríinu heima til að kaupa sér framtíðarheimili
  4. Fjárfestar þurfa oft að klára að fjárfesta fyrir áramót af skattalegum ástæðum
  5. Eignir skarta yfirleitt sínu besta um hátíðanar þar sem kertaljós gefa rómantískan blæ og jólailmurinn er í loftinu.

Margir seljendur hugsa, ég nenni ekki að setja á sölu núna. Það er brjálað að gera hjá mér, ég er að stússast með krökkunum, kaupa jólagjafirnar, baka smákökurnar, skreyta og jólastressið. Það er einfaldlega of mikið að gera hjá mér. Ég ætla að bíða fram í janúar. Það sem gerist hins vegar í janúar er að þá koma allar þessar eignir sem biðu fram yfir áramót í sölu. Þín eign er þá að keppa við miklu fleiri eignir. Sagan endurtekur sig alltaf. Þannig að hvers vegna að bíða þar til samkeppnin verður meiri? Það eru litlar líkur á því að heimilið verði undirlagt af kaupendum að skoða alla daga. Ef þú hugsar þetta, hversu margir vilja eyða aðventunni í að skoða fasteignir ef þeir þurfa þess ekki?

Þannig að ef þú ert í söluhugleiðingum mæli ég alltaf með því að skella henni á sölu núna. Okkar ráðlegging er líka að undirbúa eignina áður en jólin yfirtaka heimilið. Það er betra að taka myndir áður en húsið er skreytt. 

Við hjá Húsaskjóli bjóðum upp á fulla þjónustu þannig að þú þarft bara að skrifa undir söluumboðið og við sjáum um rest. Við sníðum sölumeðferðina að þínum þörfum og sýnum þegar þér hentar.

Við vitum ekki hvað framtíðin ber í skauti sér 2024 með vexti og verðlag fasteiga, eina sem við vitum er hver staðan á markaði er í dag.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggiltur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is- Sími: 863 0402



Aðrar færslur