miðvikudagur 01.04.2026

Er fólk að borga upp verktakalánin?

Í viðtali í Bítinu á Bylgjunni þann 20.janúar 2026 segir Jón Finnbogason framkvæmdastjóri Stefnis að fólk sé þegar byrjað að greiða upp lánin sem þau tóku. Ég spurði Stefni út í hversu margir hefðu greitt upp lánin og hversu margir hafa tekið svona lán og þeir vildu hvorki gefa upp hversu margir hafa greitt upp lánin né hversu margir hafa tekið svona lán. Hvers vegna ætli það sé?

Er það bara ég sem tel það vera rautt flagg að fólk sem tekur lán í október vilji greiða upp lánin eða greiða inn á lánin eftir 3 mánuði? Er fólk virkilega að taka lán sem það þarf ekki að taka og ef þessi lán eru svona frábær kostur hvers vegna valdi það að greiða það strax til baka? Um leið og einn aðili gerir þetta þá er hægt að segja við erum með dæmi um að fólk sé þegar byrjað að greiða lánin til baka. Frábært, væruð þið þá til í að segja okkur hversu margir eru búnir að greiða lánin til baka og hversu margir eru að taka þessi lán.

Þetta minnir mig aðeins á myndina “He’s just not that into you” þar sem konur réttlættu allskonar ömurlega hegðun hjá mönnum sem þær voru að deita vegna þess þær voru sannfærðar um að þeir myndu gyrða í brók og giftast þeim vegna þess að að vinkona þeirra hefði einmitt deitað svona mann og núna væru þau gift. Já vegna þess að hann var frávikið.

Við höngum á frávikinu til að sýna fram á að eitthvað sé að ganga upp. Þannig að ég virkilega vona að hagsmunaaðilar verktakalánana stígi fram, útskýri fyrir mér og fleirum sem eru ekki að sjá ljósið hvers vegna verktakalánin eru frábær kostur fyrir kaupendur og hvers vegna þeir myndu mæla með þessum kosti fyrir börnin sín.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur