fimmtudagur 18.06.2026

Hversu margar lygar eru í verktakasamningunum?

Þegar ég byrjaði að ræða verktakasamningana í janúar 2026 þá var ansi margt sem mér fannst ekki í lagi. Í viðtali á Bylgjunni í sama mánuði sagði Jón Finnbogason lögmaður og framkvæmdastjóri Stefnis að hann hefði samið verktakasamningana. Ég þekki Jón ekki persónulega þannig að ég ákvað að spyrjast fyrir um hann og allir sem ég talaði við voru sammála um að Jón væri einstaklega hæfur, vandaður og fær lögmaður og framúrskarandi samningamaður. Þannig að ég varð mjög hissa þegar ég fann rangfærslur í samningnum þar sem lögmaður af hans kaliber setur einfaldlega ekki inn byrjendamistök og einu sinni geta verið mistök, tvisvar er ásetningur.

Í grein 26.1.b segir: “Komi til ágreinings um hver skuli vera formaður skal formaður skipaður af formanni Félags Fasteignasala”.

Í grein 31.1. segir: “Ef aðilar komast ekki að samkomulagi um val á fasteignasala innan 30 daga frá beiðni annars hvors um sölu húsnæðisins skal fasteignasali tilnefndur af formanni Félags fasteignasala”.

Það stendur reyndar líka að fasteignasali skuli vera Löggiltur fasteignasali. Það er bara til ein tegund af fasteignasala og það er löggiltur fasteignasali og það á lögmaður með áratuga reynslu að vita.

En hvað þýðir þetta eiginlega?

Formaður Félags fasteignasala er almennur félagsmaður sem er kosinn til 2ja ára í senn þannig að jafnvel þó að Jón væri besti vinur núverandi formanns þá er ekki hægt að lofa fram í tímann. Ég hringdi í framkvæmdastjóra Félags fasteignasala þegar ég sá þetta og þau höfðu ekki heyrt af þessu samstarfi enda hafði Jón ekkert haft fyrir því að bera þetta undir félagið. Þannig að hvað fær svona reyndan lögmann til að setja svellkalda lygi inn í samning fyrir kaupendur, ekki bara einu sinni heldur tvisvar.

Það væri gaman að fá svör við því eins og þetta snýr við mér þá er eingöngu verið að blekkja neytendur og búa til væntingar sem standast ekki. Ef fjármálastofnun út í bæ má setja inn í sína samninga að formaður Félags fasteignasala sé sáttamiðlari án þess að bera það undir þá, þá ætla ég að setja inn hjá mér að Ríkissáttasemjari sjái um að leysa úr öllum gallamálum hjá Húsaskjóli þar sem ég er þó aðili að ríkinu og borga skatta sem fara m.a. í að borga launin hans.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur