mánudagur 20.04.2026

Ganga endurfjármögnunarleiðir verktakanna upp?

Verktakalánin eru kynnt sem frábær leið til að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þú þarft bara 10% útborgun. Verktakinn lánar þér síðan 20% í gegnum sjóð hjá Stefni og eina sem þú þarft að gera er að skrifa undir, brosa og bíða eftir því að eignin þín hækki svo mikið í verði að þú getir greitt allt til baka eftir 10 ár.

Ef við skoðum fjármögnunarleiðir bankanna þá er hámarks endurfjármögnunarlán bankanna í dag 70% þannig að planið er eftirfarandi. Þú leggur út 10% og eftir 10 ár áttu svo mikið í íbúðinni þinni að þú þarft bara að taka 70% lán og getur þá borgað upp 20% hlutverktakans. Hvað ef það klikkar? Hvað ef þú getur ekki endurfjármagnað eftir 10 ár? Það hefur enginn getað svarað þessum Hvað ef spurningum.

Í hlutdeildarlánunum er skýrt að þau gilda til 10 ára en hægt að sækja um framlengingu til að allt að 25 ára. Ég fann ekkert slíkt í sameignarsamningi verktakanna þannig að stóra spurningin sem við sitjum uppi með. Hvað ef þú getur ekki endurfjármagnað? Munum við kannski sjá stóran hóp af íbúðareigendum sem geta ekki endurfjármagnað eignina sína og þurfa að selja ofan af sér óháð markaðsaðstæðum? Lífið er ekki meitlað í stein og margt getur gerst á 10 árum. Það er gífurlega mikilvægt að spyrja gagnrýnna spurninga áður en stokkið er á þennan vagn.

Fyrsta spurningin ætti alltaf að vera. Hvað gerist ef ég get ekki endurfjármagnað lánið mitt eftir 10 ár. Hvaða úrræði eru í boði fyrir mig?

Ég myndi byrja á því að panta yfirlit yfir endurgreiðsluplanið og hafa skrifleg svör hvað gerist ef ég næ ekki að endurfjármagna. Svörin sem ég hef fengið eru pínu einhliða. Það er ekki tímabært að ræða þetta núna og auðvitað verður þessu reddað ef eitthvað kemur uppá. Þetta reddast er ekki plan og þú semur ekki svo auðveldlega eftir á.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur