Eitt af því sem ég skil engan veginn í þessum verktakalánum er sú kvöð að kaupandinn borgi verktakanum 5% verðtryggða leigu á hans eignarhlut. Á 10 árum eru þetta mjög háar upphæðir sem kaupandinn þarf að greiða. Samt er skýrt í sameignar samningnum að Viðskiptavinur og verktakinn séu að kaupa húsnæðið í sameiningu og eiga húsnæðið í óskiptri sameign.
Þannig að kona spyr sig ef þú átt húsnæði með mér í óskiptri sameign hvers vegna þarf ég bæði að greiða þér leigu og þú færð líka hækkun á þinn eignarhlut. Þrátt fyrir að eiga húsnæðið í óskiptri sameign þá greiðir kaupandinn allan rekstrarkostnað af eigninni fyrir utan fasteignagjöld sem eru greidd í samræmi við eignarhlut hvors aðila fyrir sig.
Þessir samningar eru ansi einhliða fyrir annan aðilann og flestar kvaðir eru á kaupandann og því gífurlega mikilvægt að kynna sér kosti og galla fyrirkomulagsins og ég mæli eindregið með því að reikna dæmið út til enda áður en lagt er af stað. Hvað kostar þetta á endanum ef þú þarft að borga 5% verðtryggða leigu og svo greiða verktakalánið til baka á 10 árum.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402