Í dag eru allskonar sambandsform og yngra fólk er yfirleitt mun opnara en miðaldra fólk og eldra. Poly eða fjölástir er orðið nokkuð þekkt sambandsform þar sem þú getur verið í sambandi við fleiri en einn aðila á sama tíma. Stundum ákveður fólk t.d. í hjónabandi að opna sambandið þannig að þú ert gift aðila en átt síðan kærustu eða kærasta.
Stundum eiga hjónin sameiginlega kærustu og þarna geta málin vandast. Það sem Poly kærastan þarf að varast er að gleyma sér ekki í hita leiksins. Ef Poly kærastan myndi t.d. ákveða að fara að búa með hjónunum þá eru engin lög eða reglur sem tryggja henni réttindi. Ef þetta yrði sambandsform sem myndi vara í mörg ár þá yrðu hjónin að gera erfðaskrá til að tryggja Poly erfðarétt. Það er enginn makalífeyrir eða önnur réttindi sem Poly getur fengið.
Til að flækja dæmið ennþá meira þá gæti Poly kærastan orðið ólétt og yrði heimavinnandi til lengri tíma, þarna munu gífurleg framtíðarréttindi tapast þar sem lífeyrissjóðurinn minnkar, séreignasparnaðurinn safnast ekki upp og enginn sparnaðurinn sem hægt er að ganga á ef sambandið gengur síðan ekki upp.
Ég mæli alltaf með því að ef fólk ætlar að fara að rugla saman reitum á einhvern hátt að skilgreina allar leikreglur fyrirfram og tryggja sína hagsmuni því það er yfirleitt of seint að skoða þetta ef illa fer.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is - Sími: 863 0402