Lánshæfismatið segir þína sögu eða feril.
Lánshæfiseinkunnin þín segir fjármálastofnunum hversu líklegt það er að þú borgir lánin þín til baka á réttum tíma.
Greiðslumatið segir hversu hátt lán þú getur tekið.
Það er að segja, hefur þú efni á að kaupa í matinn eftir að þú ert búinn að borga af láninu?
Seðlabankinn er búinn að setja hámark á hlutfall greiðslubyrgðar sem þýðir að þú þurfir að eiga a.m.k. 65% (60% fyrir fyrstu kaupendur) eftir af laununum þegar þú er búinn að borga af láninu.
Yfirleitt er ekki hægt að fá greiðslumat fyrr en eftir samþykkt kauptilboð
Það er hins vegar alltaf hægt að fá bráðabirgðagreiðslumat, sem er frítt á netinu.
Það er mjög leiðinlegt fyrir alla þegar kaupandi nær ekki greiðslumati þannig að ég mæli klárlega með að þú skoðir þitt bráðabirgðagreiðslumat áður en þú ferð á opið hús eða gerir tilboð.
Ef þú ert með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn, sendu mér línu á steingrimur@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
steingrimur@husaskjol.is - Sími: 869 2831