fimmtudagur 26.03.2026

Hvers vegna gagnrýna hagsmunaaðilar ekki mína umfjöllun um verktakalánin?

Í janúar setti ég 5 video á samfélagsmiðlana þar sem ég gagnrýndi harðlega skilmála verktakalánanna svokölluðu og skoraði á hagsmunaðila að sýna fram á að ég hefði rangt fyrir mér. Ég fór einnig í 3 útvarpsviðtöl. Það gerðist síðan EKKERT. Það steig enginn fram og sýndi fram á að ég hefði rangt fyrir mér. Það steig enginn fram og sýndi fram á að ég væri bara ekki að skilja þetta frábæra concept að verktaki myndi eiga íbúð með kaupandanum sínum og hagsmunir kaupandans væru auðvitað gulltryggðir.

Það er aðallega tvennt sem ég hef gagnrýnt.

1. Endurfjármögnunarplanið gengur einfaldlega ekki upp miðað við núverandi bankareglur og það er ekkert í þessum skilmálum sem eru upp á tugi blaðsíðna sem segir að ef það sé ekki hægt að endurfjármagna eftir 10 ár hvað sé þá gert.

2. Skilmálarnir eru allir mjög einhliða með hagsmuni verktakans og fjárfestingarsjóðsins að leiðarljósi en ekki kaupandans.

Þannig að ég ætla að skora á hið opinbera, hagsmunaðila og fjölmiðlafólk að taka þessa umræðu áfram og sýna fram á svart á hvítu hvernig hagsmunir kaupenda eru tryggðir ef það er ekki hægt að endurfjármagna íbúðina eftir 10 ár. Þurfa þeir að selja ofan af sér? Fá þeir framlengingu á láninu eða hvað verður nákvæmlega gert? Að segja miðaldra konu að slaka á og að þessu verði pottþétt reddað er ekki svar.

Það er ekki lengur í boði að gaslýsa fólk bara af því að það hefur enginn hugsað hlutina til enda. Þannig að ég hef bara eitt að segja. Ég vona virkilega að ég hafi rangt fyrir mér og að einhver girði í brók og sýni svart á hvítu hvernig hagsmunir kaupenda eru varðir og að þetta sé ekki bara skítaredding fyrir verktaka að selja vöru sem fáir vildu kaupa.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur