Í lið 5 um afnot húsnæðis stendur í lið 5.1
“Viðskiptavinur skal nýta húsnæðið af tilhlýðilegri aðgát. Ekki má nota húsnæðið á þann hátt að það skerði útlit húsnæðisins eða orðspor REIR20.
Hvað þýðir eiginlega að nýta húsnæði af tilhlýðilegri aðgát, hver metur það og hver tekur það út. Hvað þýðir eiginlega að skerða orðspor REIR20.
Vitið þið hvað stendur ekki í þessum lið. Það stendur ekkert um að REIR20 megi ekki rýra orðspor kaupandans. Kaupandans sem er skráður fyrir 80% af eigninni. Kaupandans sem er meirihluta eigandi af íbúðinni.
Það er gott að hafa í huga að verktakaíbúðirnar eru í fjölbýlishúsum og það gilda lög og reglur um umgegni í fjölbýlishúsum sem allir þurfa að fara eftir. Ég skil t.d. alveg að ég megi ekki opna kannabisverksmiðju í íbúðinni eða reka vændishús en það stangast meira á við almennhegningarlög frekar en orðspor REIR20. Þannig að ég spyr hvaða orðspor er fjárfestingasjóður með sem fólk sem býr í eigin íbúð getur skaðað og hvers vegna er ekki eðlilegt að gera sömu kröfu á REIR20.
Í 5.4 er einnig talað um að viðskiptavinurinn beri ábyrgð á því að húsnæði uppfylli ávallt kröfur um búnað og gæði ... Þetta er nýbygging sem á að vera í samræmi við lög og reglur og því ekki kaupandans að passa upp á það heldur verktakans.
Hversu langt nær þessi skylda kaupandans að vernda orðspor REIR20. Má hann gagnrýna þá í opinberri umræðu. Má hann skrifa neikvæða umfjöllun. Hvað þýðir eiginlega þessi grein?
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402