Ég hef fengið svolítið af spurningum hvers vegna ég sé í krossferð gegn verktakalánunum og Stefni.
Í raun byrjaði þetta sakleysislega. Ég sá auglýsingu um verktakalánin og hafði nokkrar spurningar og setti því inn spurningu undir auglýsinguna. Henni var ekki svarað. Stuttu seinna hitti ég fasteignasalann sem var að selja þetta verkefni og ég spurði hann meira út í þetta og þá byrjaði gaslýsingin. Ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu. Mínar spurningar væru ekki tímabærar og ef eitthvað kæmi upp á þá yrði þessu reddað. YRÐI ÞESSU REDDAÐ.
Hvað þýðir það eiginlega á mannamáli?
Það var á þessu augnabliki sem ég áttaði mig á því að það var enginn með svör við þessum í raun einföldu spurningum. Hvað á að gera ef kaupandinn getur ekki endurfjármagnað lán verktakans eftir 10 ár. Ég hef haft fullt af öðrum spurningum og hef gagnrýnt samninginn sjálfan mikið fyrir að vera flókinn og einhliða í hagverktakans og sjóðsins.
Það er gott að hafa í huga að það koma margir aðilar að þessu máli. Það er verktakinn, það er Stefnir og það er Aparta sem er umboðsaðili sjóðsins. Allir vilja fá eitthvað fyrir sinn snúð og líklega er það kaupandinn sem borgar þann snúð að fullu þegar upp er staðið.
Ég vil því ítreka mína spurningu og biðja hagsmunaaðila að stíga fram og svara þessari einföldu spurningu. Hvað verður gert ef kaupandinn getur ekki endurfjármagnað lánið eftir 10 ár? Hvernig á að tryggja að kaupandinn tapi ekki öllu sínu eigið fé en sjóðurinn og verktakinn fái allt sitt og hvernig á að tryggja að kaupandinn lendi ekki á götunni ef hann getur ekki endurfjármagnað og á hvaða kjörum verður honum REDDAÐ ef það verður loka niðurstaðan?
Að enginn hagsmunaðili hafi getað svarað mér hvað verður gert ef kaupandinn getur ekki endurfjármagnað er RISASTÓRT RAUTT FLAGG og ég vil því skora á alla sem eru að hugsa um svona lán að spyrja þessara spurninga.
Hvað verður gert ef ég get ekki endurfjármagnað eftir 10 ár? Verður mér hent út á götuna? Verð ég neydd til að selja og á hvaða kjörum? Verður mér reddað og þá hvernig?
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402