fimmtudagur 24.09.2026

Færðu greitt fyrri barnauppeldi?

Það er ótrúlega algengt að fólk sem býr saman og á börn saman sé ekki með sameiginleg fjármál heldur sé þetta svona mitt er mitt og þitt er þitt og ef það er mikill tekjumunur á milli aðila þá leggur þessi tekjuhærri inn á þennan tekjulægri, svona pínu eins og vasapeninga inn á börn.

Oft er viðhorfið líka að sá sem er lægri laun taki þá megnið af þessu “stússi” heimafyrir s.s. að sækja börnin, kaupa í matinn, elda og þrífa og jú sjáum börnin og hinn aðilinn geti þá verið meira í vinnunni og aflað hærri tekna sem nota bene hinn makinn nýtur í raun ekki góðs af.

Það er líka mikilvægt að hafa í huga að á meðan annar er heima að “stússast” þá er hinn að byggja upp sitt fjárhagslega sjálfstæði, t.d. með miklu hærri greiðslum í lífeyrissjóði og séreignasparnað.

Þetta er ekkert flókið, ef einhverjum finnst í lagi að fá frí afnot af maka í 9 mánuði til að ganga með barnið sitt þá er líka eðlilegt að makinn fái aðgang að fjármálum hins.

Það sem ég vil ráðleggja öllum sem eru að reka saman fjölskyldu að hafa allt upp á borðinu. Það versta sem tekjulægri makinn gerir er að láta hinn aðilann sjá um alla stóru reikningana, s.s. afborganir afhúsnæðislánum og reksturinn á húsnæðinu og sjá um hitt smotterýið eins og kaupa í matinn, föt á krakkana og þess háttar, sérstaklega ef þið eruð ekki bæði skráð fyrir fasteigninni sem þið búið í.

Ef að makanum finnst eðlilegt að deila bara sumu eins og barneignum en fjármálin séu sitt einkamál þá þarf að spyrja sig, bý ég kannski við fjárhagslegt ofbeldi.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

863 0402



Aðrar færslur