fimmtudagur 13.08.2026

Bera bankar samfélagslega ábyrgð?

Þegar ég var rúmlega tvítug þá var ég skiptinemi í Honduras í eitt ár. Þar kynnist ég í fyrsta skipti alvöru stéttaskiptingu. Eitt sem ég tók eftir var að það voru allir sem gátu með heimilishjálp sem bjó á heimilinu og þegar ég spurði fjölskylduna mína út í hvers vegna það væri þá sagði mamma mín að þetta væri í raun hluti af samfélagslegri ábyrgð. Þeir sem gætu tæku til sín ættingja frá fátækari heimilum, oft úr sveitinni til að létta undir með þeim og gefa ungu stelpunum tækifæri sem þær fengu ekki annars.

Þessi orð rifjuðust upp þegar Halla formaður VR sagði akkúrat það sama í maí 2026 þegar hún skoraði á að bankar myndu sýna samfélagslega ábyrð.

Í maí 2026 kom grein á Vísi þar sem VR, LÍV OG Fagfélögin fordæmdu vaxtahækkanir viðskiptabankanna sem voru tilkynntar í kjölfar þess að peningastefnudeild Seðlabankans hækkaði stýrivexti og kröfuðust þess að bankarnir myndu draga hækkanirnar til baka svo að kjarasamningar myndu halda.

Samkvæmt þessari frétt þá skiluðu viðskiptabankarnir samanlagt hátt í 100 milljarða króna hagnaði á síðasta ári eftir skatta eða rúmlega 320.000 krónum á hvern fullorðinn einstakling. Ég held að það sé kominn tími til að staldra við og skoða hvernig samfélag við viljum byggja upp.

Ef fjórir af hverjum tíu foreldrum á vinnumarkaði eiga erfitt með að ná endum saman þá erum við að byggja upp samfélag með gífurlegri stéttaskiptingu og ég man þegar ég bjó í Honduras þá var eitt af því sem ég var stolltust af með Ísland hvað það var lítil stéttaskipting.

Í dag hefur hún aukist gífurlega og þegar fólk með fjármálaforréttindablindu á hæsta stigi leyfir sér ítrekað að koma fram í fjölmiðlum og tala um að ef launþegar fái launahækkun í haust þá muni allt fara til fjandans og verðbólgan aukast þá er kominn tími til að stoppa við og segja hvernig getum við sem samfélag tryggt það að venjulegt fólk nái endum saman. Vandamálið liggur ekki í kjarasamningum verkalýðsfélagana og það er kominn tími til að við viðurkennum það.

Ertu sammála, deildu þessu og fáum umræðu hvert við viljum stefna sem þjóðfélag því það er alltaf þjóðhagslega hagkvæmt að allir geti lifað mannsæmandi lífi.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

- 863 0402



Aðrar færslur