Til þess að svara þeirri spurningu er mikilvægt að þekkja muninn á nafnverði og raunverði.
Það var nýlega birt fasteignamat 2027 og samkvæmt því hefur fasteignaverð íbúðareigna hækkað um 1,2% en samt var lækkun á raunverði. Það þýðir að verðbólgan var meiri en hækkun á íbúðarverði.
Hækkun á fasteignamati og markaðsvirði er mælt í nafnverðshækkun, það er krónutalan sjálf. Þannig að 1% hækkun þýðir að eign fer úr 100m kr í 101m kr.
Raunverðs hækkun tekur hinsvegar tillit til þess hvernig verðgildi krónunnar breytist með tímanum. Það er hversu mikið er hægt að kaupa fyrir sömu krónuna eftir einhvern tíma.
Verðbólgan hækkaði á sama tíma um 5,2% og þar sem fasteignamatið hækkar minna en almennt verðlag, þá lækkar það í raun um 4% að raunvirði, þó krónutalan hækki.
Ef þú ert með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn, sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.