fimmtudagur 06.08.2026

Hvað segir fasteignamat 2027?

Fasteignamat næsta árs var gefið út fyrir stuttu og samkvæmt því hækkaði heildarmatið um 2,1% milli ára.

Fasteignaverð íbúða hækkaði aðeins um 1,2%, en atvinnueignir hækkuðu um 4,8% og sumarhús um 4,7%. Þannig að eftirspurnin eftir sumarhúsum heldur uppi fasteignamati frekar en íbúðir.

En hvað segir fasteignamatið okkur?

Fasteignamat er metið markaðsvirði fasteigna. HMS notar nokkrar reikniaðferðir til að meta hvað eignin, hús og lóð, ætti að seljast á miðað við stærð, aldur, staðsetningu og fleira.

Það sem er mikilvægt að vita er að fasteignamatið miðast við árið á undan, þannig að fasteignamat 2027 byggist á áætluðu markaðsvirði í febrúar 2026. Árinu á undan.

Söluverðið ræðst hinsvegar af því hvað kaupandi er tilbúinn að greiða núna, það er sjaldan það sama og fasteignamat þó matið geti verið gott til þess að meta hvert markaðurinn stefnir.

 

Ef þú ert með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn, sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Steingrímur Þór Ágústsson
Löggiltur fasteignasali og hagfræðingur

- Sími: 869 2831



Aðrar færslur