fimmtudagur 03.09.2026

Eru opin hús tímaskekkja?

Þegar ég byrjaði að vinna sem fasteignasali 2003 þá voru opin hús næstum því óþekkt. Ég byrjaði hjá RE/MAX sem innleiddi Opin hús og það voru ansi margir seljendur sem leist ekkert á svona vitleysu. Nei veistu það mun allt fyllast af forvitnum nágrönnum og ég nenni ekki að fá ókunnugt fólk heim til mín. Svo breyttist þetta og Opin hús urðu stór hluti af söluferlinu. Ég byrja almennt alltaf með Opið hús þegar ég set nýja eign á markaðinn. Hins vegar skiptir máli á hvernig markaði við erum hvort að það sé alltaf sniðugt að keyra endalaus opin hús upp á von og óvon að einhver mæti.

Síðan 2003 hefur gífurlega mikið breyst. Það er næstum því ekki hægt að gera neitt lengur nema bóka tíma nema sko í Opin hús þau eru ennþá keyrð með sama háttalagi. Auglýsa opin hús og krossa svo fingur og vona að einhver mæti.

Það er gífurlega mikil vinna fyrir seljendur að undirbúa eignina fyrir opið hús og síðan þarf að fara að heiman með tilheyrandi raski sérstaklega ef það eru lítil börn og dýr á heimilinu. Fljótt á litið eru seljendur að fjárfesta svona 5 tímum í hvert opið hús og fasteignasalinn svona 2 tímum. Þannig að fyrir stærri eignir þá er þetta heill vinnudagur samanlagt ogsvo bara æi sorry það mætti bara enginn.

Í Covid þurftu allir að bóka sig í opið hús og það fannst öllum það sjálfsagt. Við bókum okkur í gegnum Noona og Dineout og það er meira að segja tekið skrópgjald ef við gleymum að mæta. Við hjá Húsaskjóli höfum haft bókunarkerfi fyrir okkar Opnu hús síðan í Covid sem er einfaldlega þannig að ef enginn er bókaður sólarhring fyrir auglýst opið hús þá fellur það niður. Þannig þarf seljandinn ekki að eyða deginum í að taka til og getur bara slakað á heima. Tími er í raun ein okkar mesta auðlind og við þurfum að nýta hann vel. Hvað finnst ykkur? Er ekki löngu kominn tími á að innleiða bókunarkerfi í Opin hús hjá öllum og hætta að eyða tíma seljenda í vitleysu?

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

863 0402



Aðrar færslur