Það er mjög gott að hafa á bakvið eyrað þegar þú ákveður að setja eignina þína á sölu að markaðnum er alveg sama um þig og þínar þarfir og þú færð aldrei meira fyrir þína eign en markaðurinn er tilbúinn að borga. Það er mjög algengt að seljendur segjast vera tilbúnir að selja fyrir rétt verð, þeir séu tilbúnir að setja á sölu en eingöngu selja ef þeir fá rétt verð og að þeirra mati sé X milljónir rétt verð fyrir þeirra eign.
Í dag hefur aldrei verið auðveldara fyrir kaupendur að taka upplýsta ákvörðun um hvers virði eignin sé sem þeir hafa áhuga á að kaupa. Þeir geta leitað í seldum eignum og séð nákvæmlega hvað sambærilegar eignir hafa selst á. Þeir geta framreiknað verðið miðað við vísitöluhækkun sem hefur átt sér stað og þeir geta líka séð myndir og lýsingu af þeim sambærilegu eignum sem hafa selst.
Mitt ráð til seljenda er að setja eignina inn þegar þeir eru tilbúnir að selja og reiðubúnir að setja rétt verð á eignina. Í raun er eina skiptið sem hægt er að setja eignina á sölu og bíða eftir réttu verði er þegar við erum á bullandi seljandamarkaði og eignir hækka óeðlilega hratt. Það er sem betur fer mun sjaldgæfara en að vera á markaði sem er í jafnvægi sem er algengast og svo eins og markaðurinn er núna þá er hann frekar aðeins lækkandi heldur en hitt þar sem nýjar eignir sem koma inn eru oft að koma inn á lægra verði en eign sem hefur verið á sölu í nokkra mánuði.
Ef eignin hefur verið á sölu í nokkra mánuði þá má leiða að því líkum að hún sé aðeins of hátt verðlögð. Stundum dugar að gera litlar breytingar á verðinu til að draga að rétta kaupendur og það er því mikilvægt að vera opin fyrir því að stundum þarf að gera breytingar frá upphaflega ásetta verðinu ef fólk er ákveðið í að selja.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
- 863 0402