Þetta er eilíf spurning og fólk er mjög ósammála um kosti og galla. Þegar ég keypti mína fyrstu íbúð þá var bara hægt að taka 40 ára verðtryggð lán sem ég myndi aldrei mæla með. Í dag er hins vegar er hægt að taka lán með allskonar útfærslum og það sem ég ráðlegg alltaf mínum kaupendum að skoða er hver er greiðslubyrðin af 40 ára óverðtryggðu láni og hversu stutt getur verðtryggða lánið verið með sömu greiðslubyrði og meta svo hvað hentar þeim best.
Ég setti upp reiknidæmi í reiknivélinni hjá Arionbanka.
Ef kaupandi tekur 50,000,000 kr, 100% verðtryggt lán þá er greiðslubyrði á 30 ára verðtryggðu láni með 4,7% vöxtum 261,653 kr og heildarendurgreiðsla lánsins yrði 220,408,213 kr.
100% óverðtryggt lán þá yrði greiðslubyrðin á lán til 40 ára með 8,75% er 378,130 kr og heildarendurgreiðslubyrðin yrði 181,502,347 kr.
Hins vegar ef þú styttir verðtryggða lánið niður í sömu greiðslubyrði þá yrði verðtryggða lánið til 16 ára, greiðslubyrðin yrði 374,261 kr og heildarendurgreiðslubyrðin yrði 110,155,584 kr eða 71,346,763 kr lægri en óverðtryggða lánið.
Ef þú ert fyrsti kaupandi og ert 24 ára og tekur 16 ára lán þá ertu búinn að greiða upp lánið 40 ára. Ef þú tekur 40 ára lán þá ertu búinn að greiða það upp 66 ára. Þannig að hvað sem þú gerir og hvernig lán sem þú velur vertu viss um að skoða kosti og galla og bera saman hvað kemur best út fyrir þig.
Ef þú ert að endurfjármagna þá er alltaf gott að skoða hvort að það sé rými til að stytta lánið þar sem þú greiðir alltaf minna til baka til bankans fyrir hvert ár sem þú getur stytt lánið.
863 0402