fimmtudagur 29.10.2026

Viðbótarséreignasparnaður er ókeypis launahækkun


Það eru ótrúlega margir sem eru ekki að nýta sér viðbótarséreignasparnað, nenna ekki að spá í þetta og finnst flókið hvað þeir eiga að velja. Inn á og er mikið af flottu efni varðandi þennan sparnað.

Stutta útgáfan þú færð 2% launahækkun þar sem atvinnurekandinn greiðir þér 2% ofan á þín 4%. Þetta er ekki aðfararhæft við gjaldþrot og erfist að fullu til lögerfingja án þess að greiða erfðaskatt.

Fyrstu kaupendur geta nýtt séreignasparnaðinn sem inn á borgun á fyrstu eign. Þá kemur hann við afsal þar sem þú færð hann ekki greiddan út fyrr en búið er að þinglýsa kaupsamningi og einnig er hægt að ráðstafa greiðslum í hann inn á húsnæðislán upp að vissu hámarki. Til að vera viss um að hvaða upphæð þú mátt setja í fasteignakaup þá þarftu að heyra í þínum sjóði og fá hana staðfesta.

Hins vegar eru ekki allir sjóðir eins og sumir bjóða ekki lengur upp á úrræði að nýta inneign í fyrstu kaup þannig að það er nauðsynlegt að kanna hvort að þinn sjóður leyfi þetta og ef ekki þá bara skipta um sjóð.

Hvenær ættir þú að byrja að nýta þér viðbótarséreignasparnaðinn? Um leið og þú færð fyrsta launaseðilinn þar sem 2% af heildarlaunum geta orðið gífurlega háar upphæðir og gert þér kleift að eiga ennþá áhyggjulausari æviár og það er aldrei of seint að byrja.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

863 0402



Aðrar færslur