fimmtudagur 08.10.2026

Af hverju er verðbólgumarkmiðið 2,5%?

Verðbólgan er 5,3 prósent. Markmið Seðlabankans er 2,5 prósent og í ágúst voru vextir hækkaðir til að loka því bili.

En af hverju ekki bara hækka markmiðið og sleppa fólki við háu vextina?

Þrjár ástæður

1.      Það leysir ekki vandann.

Verðbólga er hraðinn sem kaupmáttur launa og sparnaðar rýrnar. Við 2,5 prósent verðbólgu tvöfaldast verðlag á 28 árum. Við 5 prósent verðbólgu tvöfaldast það á 14 árum. Hærra markmið fjarlægir ekki kostnaðinn heldur tvöfaldar hann varanlega.

2.      Markmið sem er hækkað þegar hentar hættir að vera markmið.

Ef markmiðinu er breytt í hvert sinn sem það reynist óþægilegt þá hættir fólk að trúa því. Væntingarnar færast upp og nafnvextir elta alltaf væntingar. Léttirinn á vöxtunum er tímabundinn en reikningurinn er það ekki.

3.      Verðtryggingin.

Stór hluti húsnæðisskulda fylgir verðbólgunni beint. Þar leggst hvert prósentustig á höfuðstólinn í stað þess að rýrna með honum. Fyrir þá lántakendur þýðir hærra markmið ekki lægri greiðslur, heldur hærri skuld.

Það er líka ástæðan fyrir því að vextirnir lækka ekki fyrr en verðbólgan er á leiðinni niður og af hverju fasteignamarkaðurinn bíður eftir hvoru tveggja. Óverðtryggðu lánin eftir vöxtunum og þau verðtryggðu eftir verðbólgunni.

 

Ef þú ert með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn, sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Steingrímur Þór Ágústsson
Löggiltur fasteignasali og hagfræðingur

869 2831



Aðrar færslur