Þegar ég keypti fyrstu íbúðina mína 1996 þá voru bara 40 ára verðtryggð lán í boði og ég get alls ekki mælt með þeim. Lánaúrvalið í dag er töluvert meira en flestir fókusa á óverðtryggð lán.
Það sem ég hef verið að ráðleggja sérstaklega fyrstu kaupendum sem og þeim sem eru að kaupa sína aðra eign að skoða lánalengd lána.
Ég kíkti á lánareiknivélina hjá Arionbanka og setti inn 54.000.000 lán fyrir fyrstu kaupanda á eign sem kostar 65.000.000.
Þá er greiðslubyrðin af 40 ára lán í kringum 400.000. Síðan prófaði ég að stytta verðtryggða lánið niður í sömu greiðslubyrði og þá var það 17 ára lán.
Endurgreiðslubyrðin af óverðtryggða láninu var 194.000.000 á 40 árum á meðan verðtryggða lánið var 112.000.000 á 17 árum. Ég er ekki fjármálaráðgjafi og allir verða að skoða hvaða lán hentar hverjum og einum. Ef ef þú ert 30 ára og tekur 40 ára lán þá verður það uppgreitt þegar þú ert 70 ára, ef þú tekur 17 ára lán þá verður það uppgreitt þegar þú ert 47 ára.
Í raun má segja að því yngri sem þú ert því mikilvægara er að skoða lánalengdina á húsnæðisláninu. Það er einnig hægt að stytta það enn frekar með því að borga reglulega inn á höfuðstólinn.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is - Sími: 863 0402