fimmtudagur 19.11.2026

Verktakalánin eru í alvörunni ekki sniðug

Ég sá auglýsingu frá Hlíðarhorni sem eru að byggja eignir við Valshlíð að ef þú kaupir íbúð á ásettu verði með verktakaláni þá borgar þú ekki leigu á hlut verktakans í 36 mánuði. Ég skoðaði aðeins reiknivélina þeirra inn á s8.is.

Þar kemur fram að ef þú kaupir íbúð á 80.000.000 þá greiðir þú ekki leigu fyrstu 3 árin ef þú kaupir íbúð á ásettu verði, annars er leigan 3.5 % af þeirra hlut og svo eftir 3 ár verður hún 6.5 % eða 121.860 verðbætt á mánuði þar til þú kaupir út hlut verktakans. Geggjað tilboð ekki satt?

Ef þetta er of gott til að vera satt þá er það yfirleitt þannig.

Skoðum málin. Ég heyrði í Jónasi Atla yfirhagfræðingi hjá HMS og hann sendi mér yfirlit yfir nýjar íbúðir sem eru seldar undir ásettu verði. Í ágúst 2026 seldust 51% af nýjum íbúðum undir ásettu verði. Þetta er með því mesta sem hefur selst undir ásettu frá 2013. Hmm. Hversu frábært er þetta tilboð þá eiginlega?

Samkvæmt sömu reiknivél er hagstæðast að kaupa út hlut S8 innan 3 ára enda er hann ekki “nema” 22.497.280 kr. Í alvöru. Ef ég átti bara 8 M í útborgun fyrir þremur árum hverjar eru þá líkurnar á því að ég geti vippað upp 22.5 millum þremur árum síðar?

Samkvæmt reiknivél Arionbanka þá greiði ég 124.306 kr á mánuði af 23.000.000 kr verðtryggðu láni sem er bara eiginlega akkúrat sama talan. Hvers vegna ætti ég að vilja eiga 10% hlut í íbúð og greiða háa leigu tilverktakans á sama tíma?

Málið er einfalt. Kaupendur hafa sjaldan verið í betri stöðu til að semja um lækkun á íbúðum en akkúrat núna og þá sérstaklega nýbyggingum sem seljast hægar en oft áður. Það eru því mjög miklar líkur á því að ef þú ert ekki með keðjukaup að þú getir lækkað nýja íbúð um amk þessa upphæð ef ekki meira. Það þýðir að þú þarf að taka lægra lán og endurgreiðslubyrðin er minni þegar upp er staðið. En tölum bara hreint út. Ef þú átt 10% útborgun þarftu í alvöru að kaupa íbúð á 80.000.000 með verktakaláni. Ég mæli með því að skoða dæmið virkilega virkilega vel áður en þú íhugar svona kostaboð þar sem yfirleitt er enginn bara að gefa þér peninga af því þeim leiðist.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

863 0402



Aðrar færslur