Samkvæmt mánaðarskýrslu HMS er meðal sölutími notaðra íbúða í Reykjavík 63 dagar. Í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er það 69 dagar. Sölutími nýrra íbúða eru fjórir til sex mánuðir.
Í stuttu máli: Markaðurinn er rólegri og eignir liggja lengur.
Af hverju skiptir þetta máli?
Verðlagning
Margir verðleggja út frá því sem þeir vona að fá, ekki því sem markaðurinn er tilbúinn að borga. Of hátt verðlögð eign liggur á markaðnum mánuðum saman og endar yfirleitt á að seljast undir uppsettu verði hvort sem er. Raunhæft verð frá fyrsta degi selur hraðar, oft á sama verði eða hærra en sá sem byrjaði of hátt og þurfti að lækka tvisvar.
Fjármögnun
Ef þú ert að kaupa aðra eign og treystir á söluna til að fjármagna kaupin, ekki gera ráð fyrir peningum frá sölunni eftir sex vikur. Gerðu ráð fyrir þremur mánuðum að lágmarki. Annars endar þú í tímapressu sem kostar peninga.
Væntingar
Ef sölutíminn fer í fjóra mánuði í staðinn fyrir tvo, þá ertu undirbúin/nn fyrir að það getur gerst. Þú getur passað betur uppá fyrirvara ef þú ert að kaupa aðra eign, segir ekki upp leigusamning fyrr en kaupsamningur er undirritaður og lendir ekki í að þurfa að taka fyrsta tilboði af því að tíminn er runninn út.
Sölutíminn fyrir eign í þínu hverfi er talan sem ræður öllum hinum ákvörðunum: verðlagningu, fjármögnun og tímalínu fyrir kaup á næstu eign. Hafðu samband og ég gef þér raunhæfa tölu fyrir þína eign og þitt hverfi.
Ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi fasteignamarkaðinn, sendu mér línu á steingrimur@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
steingrimur@husaskjol.is - Sími: 869 2831