Margir segja, ég ætla að bíða eftir því að botninum sé náð en daginn sem botninum er náð þá byrjar spyrnan og það er mjög erfitt að hitta nákvæmlega á réttan dag. Í dag erum við á kaupendamarkaði. Verðin fara ennþá lækkandi og vextir eru mjög háir. Það er gott að hafa í huga að það er mjög ólíklegt að fasteignaverð fari lækkandi sem og vextir.
Valkosturinn sem kaupendur hafa í dag eru því tvennir. Að kaupa á lægra verði og taka hærri húsnæðisvexti eða bíða eftir því að vextir lækki og á sama tíma að húsnæðisverðið hækki. Þetta snýst alltaf um þarfir hvers og eins en ég persónulega myndi alltaf kaupa þegar úrval af fasteignum er meira og verðin lægri og endurfjármagna svo húsnæðislánið mitt þegar vextir lækka.
Hvers vegna er það?
3. Einstakur tími til að gera góð kaup á nýbyggingu þar sem verktakar eiga mikið af óseldum íbúðum
Þegar vextir lækka þá koma allir kaupendurnir sem voru búnir að halda að sér höndum, það þýðir að það verður meiri samkeppni um fasteignir og fleiri eru að bjóða í sömu íbúðina. Verðin eru þá líklegri til að hækka og skortur á íbúðum myndast.
Það er alltaf rólegra á hávaxtamarkaði og ef þú getur keypt í dag þá myndi ég alltaf ráðleggja þér að gera það og endurfjármagna svo þegar vextir byrja að lækka.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402