Þegar ég byrjaði að ræða verktakasamningana í janúar 2026 þá bauð Stefnir mér á fund til að ræða málin. Ég fór yfir allar mínar áhyggjur og sumt fannst þeim bara fínustu ábendingar og sögðu að samningurinn væri í stöðugri þróun. Þau ætluðu að skoða mínar ábendingar og senda mér uppfært eintak. Síðan virðist sæstrengur inn á milli Reykjavíkur og Kópavogs hafa slitnað þar sem ég hef ekki heyrt múkk frá þeim síðan.
Það sem er hins vegar búið að vefjast fyrir mér síðan ég fór á fundinn er hlutverk Fjármálaeftirlitsins. Ef ég man fundinn rétt þá hefur Fjármálaeftirlitið eftirlit með Stefni og samkvæmt Stefni fékk Fjármálaeftirlitið afrit af samningnum og virðast hafa verið sátt með hann. Stóra spurningin er hins vegar hvaða afrit fékk Fjármálaeftirlitið og hversu miklar breytingar má Stefnir gera á samningnum án þess að bera þá útgáfu undir Fjármálaeftirlitið? Má senda þeim drög og þeir renna yfir þetta og finnst það bara fínt eða þarf að senda þeim hverja einustu uppfærslu til samþykktar?
Eins og ég hef komið ítrekað inn á þá virðast verktakasamningarnir vera hluti af Villta Vestrinu. Þetta er ný fjármálaafurð sem er sett á markað. Hún er kynnt sem frábær lausn til að komast inn á markaðinn en þegar upp er staðið eru fleiri rauð flögg í þessum samningi en hjá nýfráskildum miðaldra manni sem var að skrá sig á Tinder og talar um að allar sínar fyrrverandi hafi verið geðveikar. Mér finnst skorta regluverk með svona afurðum. Mér finnst skorta gagnrýna hugsun og að einhver í stjórnkerfinu grípi boltann og skoði þetta af alvöru.
Mér er í raun alveg slétt sama hver tekur boltann en t.d.Neytendastofa eða Húsnæðismálaráðherra gætu verið góð byrjun og jú yfirlýsing frá Fjármálaeftirlitinu að þeir hafi lúslesið þennan samning og sjái ekki athugavert við hann. Hvað finnst ykkur, er ekki kominn tími á að gera kröfur til yfirvalda að standa sig betur í eftirlitinu með hagsmuni neytenda í fyrirrúmi.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402