fimmtudagur 09.12.2021

7 punkta verðmatssgreining Húsaskjóls

Við hjá Húsaskjóli vitum að það er flókið að finna rétt verð á fasteign. Þess vegna þróuðum við 7 punkta verðmatsgreiningu Húsaskjóls. Það er mikil ábyrgð að verðmeta fasteign og það eru margir þættir sem hafa áhrif að verðlagningu fasteigna. Þess vegna er nauðsynlegt að koma á staðinn, taka út eignina og beita jafningjarýni til að tryggja vandað verðmat.

7 punkta verðmatsgreining Húsaskjóls

  1. Fasteignasali mætir á staðinn. Hann sjónskoðar eignina og tekur myndir.
  2. Seljandi fyllir út ástandsskýrslu veitir upplýsingar um húsfélag ef við á.
  3. Fasteignasali útbýr verðmatsskjal þar sem fram kemur m.a. samkeppniseignir sem eru til sölu í hverfinu. Einnig  skoðar hann hvaða sambærilegar eignir hafa selst í hverfinu s.l. 2 ár.
  4. Fasteignasali núvirðir söluverðið á viðkomandi eign sem og seldum samkeppniseignum. 
  5. Húsaskjól notar 7 punkta verðmatsgreiningu í verðmatinu.
  6. Fasteignasalar Húsaskjóls hafa formlegan verðmatsfund. Það eru aldrei færri en 3 fasteignasalar viðstaddir og beita þeir jafningjarýni til að finna sem réttasta verðið.
  7. Fasteignasali hittir seljanda og fer yfir verðmatið. Saman finna þeir rétt verðmat á eignina.

Aðrar færslur