Ég sá auglýsingu frá Þgverk þar sem var sýnd glæsileg ný íbúð sem kostaði 86.900.000 kr og þú þarft bara 10% útborgun og borgar svo lága mánaðarlega leigu af hlut sjóðsins. Þarna er verið að höfða til fyrstu kaupenda þar sem það kemur skýrt fram í auglýsingunni ef þú átt erfitt með að safna fyrir útborgun og í staðinn fyrir að þurfa tugi milljóna í útborgun þarftu bara 8.700.000 kr. Ég veit ekki hvaða reikniformúlu þeir eru að nota en ef ég kaupi íbúð á 86.900.000 kr á 85% láni þá þarf ég 13 milljónir sem er engin leið að námunda upp í tugi milljóna.
Ég veit ekki með ykkur en mér finnst 8.700.000 kr hellingur af peningum og fyrstu kaupendur eru yfirleitt búnir að safna sér í langan tíma til að geta keypt fyrstu eignina sína. Ég get bara ekki ítrekað nógu mikið að biðja fólk að kynna sér kosti og galla verktakalánanna. Er virkilega ekki annar kostur í stöðunni fyrir fyrstu kaupendur en að kaupa nýbyggingu með verktakaláni? Skoðum málin aðeins.
Ef þú átt 8.700.000 kr í útborgun þá getur þú keypt íbúð fyrir allt að 60.000.000 kr og þarft þá 9.000.000 kr í útborgun.
Hins vegar hafa bankar leyfi til að fara upp í 90% veðsetningu í ákveðnum tilfellum þannig að ég myndi byrja á því að kanna það áður en þú leggur af stað að kaupa þína fyrstu íbúð. Ef þú getur fengið 90% lán þá þarftu 6.000.000 kr útborgun fyrir 60.000.000 kr eign.
Ég skil alveg að það sé freistandi að kaupa glænýja og vandaða íbúð frá Þgverk því það er óumdeilt að þeir byggja góðar íbúðir en þarf fyrsta íbúðin að vera 90.000.000 kr eða dugar kannski bara 60.000.000 kr.
Inn á í október 2026 voru 825 eignir til sölu í fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu á bilinu 60.000.000 - 70.000.000 kr, sumar eru reyndar margskráðar en þetta gefur samt góða vísbendingu.
Í upphafi skyldi endinn skoða og þó að það sé freistandi að byrja að búa í glænýrri og glæsilegri fasteign þá er yfirleitt betra að byrja í viðráðanlegri fasteign og byggja upp eigið fé smátt og smátt. Þú getur t.d. í staðinn fyrir að borga verktakanum “lága leigu” upp á ca 60.000 - 100.000 kr á mánuði greitt sömu upphæð inn á þitt lán og aukið þannig þína eignarmyndun.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
863 0402