fimmtudagur 09.07.2026

Er hægt að losa peninga af bundnum reikningi?

Það er mjög algengt að fólk sem er að safna sér fyrir íbúð setji sparnaðinn inn á reikning sem er bundin í 30 daga. Það er gríðarlega mikilvægt að vera með þetta á hreinu þar sem fólk er að fá hærri vexti á spariféið með því að samþykkja að binda peninginn í lengri tíma.

Því þarf kaupandinn um leið og hann er búinn að fá samþykkt tilboð að hafa samband við bankann og biðja um að peningurinn sé losaður. Yfirleitt tekur 2-3 vikur að klára greiðslumatið og fá lánaskjölin og þá er hægt að biðja um að kaupsamningurinn verði haldinn þegar peningarnir eru orðnir lausir.

Önnur leið sem er hægt að fara er ef kaupandinn hefur eitthvað annað eigið fé er að setja það eigið fé sem er laust við kaupsamning ogp eningurinn af lokaða reikningnum komi svo 30 dögum síðar.

Við sjáum þetta gerast ansi oft að kaupandi áttar sig ekki á því að peningurinn er bundinn svona lengi og mætir jafnvel í kaupsamning og þá fyrst kemur þetta upp. Ef þetta er keðja þá getur það sett fasteignakaup allra í uppnám þar sem það er ekki hægt að klára kaupsamninginn ef það er ekki hægt að greiða kaupsamningsgreiðsluna sem var búið að gera ráð fyrir þar sem hún gæti átt að fara áfram í 4-6 eignir. Hins vegar er yfirleitt mjög lítið mál að hliðra til ef allir eru upplýstir vel fyrir kaupsamning og gera þá plön til að leysa úr þessari bið.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur