Þegar ég bjó í New York þá var ég tvisvar stoppuð af lögreglunni. Fyrra skiptið fyrir ofhraðan akstur þar sem ég vissi ekki það væru mílur en ekki km og að ég mætti því ekki keyra á 90.... Hitt skiptið þá fór ég óvart yfir á rauðu þegar við vorum að verða of seinar á íshokkýleik. Í bæði skiptin fékk ég vinalega áminningu um að gera betur og ég lærði af því.
Hagstjórn Íslands hefur hins vegar verið með sömu möntruna síðan ég man eftir mér. Verðbólgumarkmiðið er 2,5% og eina sem fólki dettur í hug er að hækka stýrivextina til að beisla ástandið. Það virðist hins vegar ekki skipta neinu máli hvort að verðbólgan sé heimatilbúin eða í boði einhverra geðsjúkra valdagráðugra karla út í heimi.
Ég er ekki hagfræðingur en ég get lofað ykkur því að hærri stýrivextir opna ekki Hormússund og valdasjúkum eldgömlum köllum er drullusama um hvaða stýrivextir eru á Íslandi og þeir munu ekki breyta um gír. Það sem mun hins vegar gerast ef stýrivextir halda áfram að hækka eins og undirliggjandi hótun seðlabankastjóra gaf til kynna eftir síðustu hækkunina í maí 2026 er að venjulegir launþegar munu eiga erfiðara með að ná endum saman sem þýðir að þeir þurfa að skera niður neyslu sem þýðir að fyrirtækin í landinu munu eiga erfiðara með að láta reksturinn ganga upp.
Ásgeir sagði líka að það mætti búast við auknu atvinnuleysi í haust og í Peningamálum Seðlabanka Íslands eru taldar allt að 70% líkur á því að forsendur kjarasamninganna bresti. En sem betur fer hefur hagnaður bankanna og stórfyrirtækja sjaldan verið meiri þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þeim. Ég held að það sé kominn tími til að endurhugsa kerfið í heild sinni. Við þurfum að mæla lífsgæði, hamingju og almenna velferð og skoða hvernig við getum bætt það, þar sem þegar upp er staðið þá er það að fólk geti lifað mannsæmandi lífi það sem heldur þjóðfélaginu gangandi.
Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.
asdis@husaskjol.is – 863 0402