fimmtudagur 16.07.2026

Skiptir máli að vera með samþykkt greiðslumat?

Á rólegri markaði eins og í dag þá skiptir höfuðmáli að vera eins tilbúin kaupandi og hægt er. Að vera komin með samþykkt greiðslumat getur skipt höfuðmáli. Stundum kemur draumaeign margra á sölu og fleiri en eitt tilboð berst og þá er það aðilinn sem er kominn með samþykkt greiðslumat sem er líklegri til að fá eignina ef tilboðin eru sambærileg.

Einnig gengur allt mun hraðar fyrir sig. Ég var með kaupanda um daginn sem ákvað að byrja á því að fara í greiðslumat. Bókaði svo skoðun og sendi inn tilboð samdægurs. Tilboðinu var tekið fyrir hádegi og eftir hádegi var bankinn búinn að samþykkja lánaskjölin hans.

Málið er einfalt, þú þarft alltaf að vera með greiðslumat til að geta tekið lán en með því að byrja á því að fara í greiðslumat þá veistu líka hversu dýra eign þú getur keypt og ferlið verður allt þægilegra og einfaldara fyrir alla aðila.

Ertu með spurningar varðandi fasteignamarkaðinn sendu mér línu á asdis@husaskjol.is eða skilaboð á samfélagsmiðlunum.


Ásdís Ósk Valsdóttir
Löggildur fasteignasali og eigandi Húsaskjóls

asdis@husaskjol.is – 863 0402



Aðrar færslur